Superior XL, fyrir 8 manns - Þjóðhátíð

96

Superior XL týpan okkar er Stanford 800 XL tjald frá Vango. Það er mjög erfitt að toppa þetta tjald, þar sem þetta er í raun bara eins og íbúð.

Þegar gengið er inn í tjaldið tekur á móti manni virkilega rúmgóð, um 7,5 fermetra, stofa. Lofthæðin í stofunni er 202 cm svo það eru allar líkur á því að þú getir staðið þar upprétt/ur.

Í báðum hliðum tjaldsins eru svo 210x280 cm svefnherbergi, en hægt er að koma fyrir 4 einbreiðum dýnum í hvort herbergi. Það er líka mögulegt að setja aukadýnur í stofuna og nota hana sem svefnpláss, en við mælum þó ekki sérstaklega með því.

Sjá teikningar af tjaldinu hér að neðan.


Collections: Fees products, Products, Þjóðhátíð

Category: Tents

Liquid error (layout/theme line 188): Could not find asset snippets/mw_fees_objects.liquid